Hoppa yfir í efnið

Uppsetning

Við uppsettningu

Þegar kerfið er sett upp, skráum við sjálfkrafa inn grunnslóðina til að tengjast við "API"-in fyrir alla Samstarfsaðilana sem við höfum sett upp tengingu við. Þetta er geymt í Vefþjónustu Stillingar. \ Til að breyta grunnslóðinni getur þú gert það frá Þjóðskrá Uppsetning síðunni með aðgerðinni Vefþjónustu Stillingar.

Web Service Settings action button

CreditInfo Uppsetning

Passið fyrst uppá að CreditInfo sé valinn sem veitandi vefþjónustunar í Þjóðskrá Uppsetning síðunni undir tengingarupplýsingar. \ Auðkenningin sem þarf fyrir CreditInfo er Fyrirtækjakennitala, Notandanafn, Aðgangsorð, Biðlarakenni og Leyniorð Biðlara. Þetta þarf að fylla inn á Þjóðskrá Uppsetningar síðunni undir Tengiupplýsingar.

Providers field in Setup with CreditInfo selected

Ferli Þjóðarsýn Uppsetning

Passið fyrst uppá að Þjóðarsýn sé valinn sem veitandi vefþjónustunar í Þjóðskrá Uppsetning síðunni undir tengingarupplýsingar. \ Eina auðkenningin sem þarf fyrir Þjóðarsýn er Aðgangsorð sem er veitt af Ferli. Þetta þarf að fylla inn á Þjóðskrá Uppsetningar síðunni undir Tengiupplýsingar.

Providers field in Setup with Tjodarsyn selected

Sleppa veitanda - Engin

Til að geta slegið inn Þjóðskráar upplýsingar handvirkt án þess að nota vefþjónustuvetanda getur þú valið Engin sem veitanda á Þjóðskrá Uppsetningar síðunni undir tengingarupplýsingar.

Uppsetning hemilisfanga

Sjálfgefið heimilisfang

Þegar sótt er með tengingu við CreditInfo fáum við bæði Lögheimili og Póstheimili einstaklingsins. Sjálfgefið er notandinn beðin um hvaða heimilisfang á að nota. Þú getur líka valið hvaða heimilisfang á að nota sem sjálfgefið heimilisfang þegar notandi er uppfærður.

Sjálfgefin landakóði

Landakóðinn er ekki geymdur í Þjóðskrá þar sem einstaklingar búa annað hvort á Íslandi eða erlendis. Veldu hvaða landakóða á að nota fyrir einstaklinga sem hafa íslenska heimilisfanga. Sjálfgefið er stillt á IS.

Address fields in Setup

Uppsetning á viðskiptavinum, birgjum og starfsmönnum

Í Uppsetningu getur þú virkjað og óvirkjað staðfestingu á kennitölum, hvort á að Uppfæra Breyttar Færslur og hvað á að gera ef röng kennitala er slegin inn, aðskilið fyrir viðskiptavini, birgja og starfsmenn.

Customer Toggles for validation, updating, and invalid handling in Setup

Viðskiptamanna og birgja sniðmát

Fyrir viðskiptavini og birgja getur þú valið sniðmát sem verður notað þegar viðskiptavinir og birgjar eru búnir til úr staðfestingu á kennitölum.

Viðskiptamanna og birgja nota annað númer fyrir kennitölu

Fyrir viðskiptavini og birgja getur þú valið að nota annað númer sem primary lykill þegar viðskiptavinir og birgjar eru búnir til úr staðfestingu á kennitölum.

Customer Template fields in Setup

Uppsetning á Leit í ákveðnum skjölum

Á Þjóðskrá Uppsetningar síðunni getur þú valið hvaða skjöl leitir eiga að virka í. \ Leitar þá að númerinu sem slegið var inn Viðskiptamanna Númer og býr til viðskiptavin ef hann er ekki til í kerfinu þegar Viðskiptamanna Númer er fyllt inn þegar er verið að búa til Sölureikninga, Sölupöntun, Söluskilapöntun, Sölutilboð, Þjónustureikningur eða Þjónustutilboð.

Search Toggles for specific documents in Setup