Meðhöndlun á ógildum kennitölum
Valmöguleikar fyrir meðhöndlun ógildra kennitölna þegar prófaðir eru Nr. viðskiptamanna, birgja eða starfsmanna. Þegar ógildar kennitölur eru slegnar inn, veitir kerfið okkar nokkra valkosti við að meðhöndla það til að tryggja sveigjanleika og stýingu gagna. Þessir valmöguleikar leyfa notendum að ákveða hvernig þeir vilja meðhöndla það miðað við mögulegar sérþarfir og missmunandi vinnuflæði. \ Þessir valmöguleikar geta verið stilltir mismunandi fyrir viðskiptavini, birgja og starfsmenn á Stillingar síðunni.
Meðhöndlunar valmöguleikar
-
Spyrja: Þessi valmöguleiki gefur notandann skilaboð sem spyr hvort þau vilji halda áfram með að búa til viðskiptavin, birgja eða starfsmann þrátt fyrir ógilda kennitölu. Það gerir notanda kleift að taka ákvarðanir handvirkt, eftir mismunandi tilvikum.
-
Villa: Með þessum valmöguleika mun kerfið birta villuskilaboð og mun ekki halda áfram með að búa til viðskiptavin, birgja eða starfsmann. Þetta tryggir að engin gögn með ógildum kennitölum séu búin til, og viðheldur strangri gagnavinnslu.
-
Hunsa: Með þessum valmöguleika mun kerfið hunsa ógilda kennitölu og halda áfram með að búa til viðskiptavin, birgja eða starfsmann. Þetta getur verið gagnlegt í tilvikum þar sem kennitalan er ekki mikilvæg fyrir upphaflega búning á skránni og hægt er að leiðrétta hana síðar.
Þessir valkostir veita jafnvægi milli notendastýringar og sjálfvirkrar gagninnsetningu, sem hentar mismunandi viðskiptaþörfum og vinnuferlum.